Snorri Steinn vill sjá fleiri unga markmenn fara erlendis
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Viktor Gísli Hallgrímsson og Roland Eradze (Sævar Jónasson)

Snorri Steinn Guðjónsson mætti á dögunum í Rapyd-stúdíóið og settist niður með Sérfræðingnum þar sem farið var yfir Evrópumótið sem lauk í byrjun febrúar. Þá var farið yfir framtíðina og nokkur mál sem hefur verið á milli tannana á fólki rædd.

Þar á meðal var markmannsstaðan í íslenska landsliðinu til umræðu þar sem Snorri Steinn vildi koma einu á framfæri þegar umræðan hófst um stöðu Björgvins Páls í íslenska landsliðinu og stöðu þriðja markvarðar í íslenska liðinu.

,,Ef við tökum þetta markmannsdæmi yfir höfuð. Markmenn á Íslandi yfirhöfuð, við þurfum að vera betri. Markmannsþjálfun þarf að vera betri. Allir markmenn sem ég hef spilað með hafa verið 99% í sturluðu formi og æfa 300 sinnum meira en allir hinir leikmennirnir. Mín upplifun er sú hérna heima, þá er Björgvin Páll sá eini sem hefur æft eins og atvinnumaður. Ég veit ekkert hvort þetta sé bara í menningunni en við þurfum bara fleiri eins og Viktor Gísli, við þurfum fleiri markmenn sem fara bara út. Fara bara til Svíþjóðar, Noregs eða Danmerkur og afsakið að ég segi það, en fara bara á einhvern skítasamning og berjast fyrir þessu og prófa að fara í annað umhverfi," sagði Snorri Steinn og benti á að í dag eigum við þrjá markverði út í atvinnumennsku.

,,Ég held að það sé bara ekki önnur leið fyrir þá. Í dag erum við með markmann í Kolstad, Drammen og Barcelona. Adam er á leiðinni út og við þurfum bara fleiri markmenn út. Ég hef sagt það áður að ef ég myndi velja B-landslið þá væri það 95% skipað leikmönnum erlendis og fullt af leikmönnum sem eru að spila í flottum liðum og ég vil sjá fleiri unga markmenn taka skrefið og fara eitthvert út.”

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top