Spáð í spilin fyrir undanúrslitaleikina
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Tinna Valgerður Gísladóttir (Egill Bjarni Friðjónsson)

Undanúrslitin í Powerade-bikar kvenna fara fram á Ásvöllum í kvöld þegar annarsvegar Fram og Haukar mætast og síðan Valur og KA/Þór. Fyrri leikur kvöldsins hefst klukkan 18:00 en sá síðari klukkan 20:15.

Handkastið hefur fengið nokkra spekinga til að spá í spilin fyrir leiki kvöldsins. Allir spekingarnir spá Haukum og Val í úrslit. Athygli vekur að þrír af sex spekingum Handkastsins spá 28-26 sigri Hauka gegn Fram

Árni Stefán Guðjónsson - Þjálfari kvennaliðs FH:

Fram - Haukar 26-28

Haukar og Fram eru á svipuðum slóðum í deildinni en það er þó aðeins betri ára yfir Haukaliðinu þessa dagana. Fram hafa tapað síðustu tveimur leikjum sínum í deildinni, öðrum gegn Haukum, þar sem sóknarleikur liðsins hefur verið stirður og of fáir boltar varðir hinumegin. Ef Alfa Brá hrekkur í gírinn og Fram nær upp alvöru vörn með dass af markvörslu þá eiga þær séns, en Haukaliðið virðist komið í góðan takt.

Valur - KA/Þór 32-24

Bikarinn er eini titillinn sem Valsliðið vantar í safnið frá síðasta tímabili og þær munu því mæta með allt sitt og gott betur til inn í veisluna sem er framundan. KA/Þór munu að sjálfsögðu reyna sitt, en að komast í Final Four á sínu fyrsta tímabili í Olís er ansi gott dagsverk.

Ragnheiður Júlíusdóttir - Fyrrum leikmaður Fram og íslenska landsliðsins:

Fram - Haukar 26 - 28
Þessi lið hafa mæst þrisvar í vetur og tveir af þremur leikjum hafa verið stál í stál og mjög spennandi og vona ég að það gerist aftur í kvöld. Ég er ekki hlutlaus og vonast auðvitað eftir Fram sigri en held að þetta verði erfitt á móti sterku Haukaliði sem er nýbúið að valta yfir Framliðið. Ég spái því að Fram liðið mæti brjálaðar frá fyrstu mínútu og nái góðum fyrri hálfleik en munu ekki halda þetta út í seinni.

Valur - KA/Þór 31 - 23
Ég spái því að Valur vinni þennan leik sannfærandi. Hafdís mun vera með yfir 40% markvörslu og þær munu keyra hart á KA stelpur. Leikir milli þessara liða í vetur hafa ekki verið spennandi og held ég því að þessi leikur verði eins.

Júlíus Þórir Stefánsson - Þjálfari kvennaliðs Gróttu:

Fram - Haukar 22 - 24
Þetta verður hörku leikur á milli tveggja jafnra liða. Haukar eru ríkjandi bikarmeistarar og einnig á heimavelli og þar af leiðandi tel ég þær sigurstranglegri í þessum leik. Fram þarf að ná upp kraft og stemningu í sinn leik ef þær ætla sér að spila til úrslita á laugardaginn.

Valur - KA/Þór 32 - 24
Valskonur eru sigurstranglegri á pappír og hafa verið í þessum leikjum undanfarin ár og þekkja þetta svið mjög vel. Hinsvegar ef Ka/Þór nær að stjórna hraðanum í leiknum gætu þær strítt Valskonum.

Sigurjón Friðbjörn Björnsson - Aðstoðarþjálfari kvennaliðs FH:

Fram - Haukar 26 - 28
Þessi viðureign verður ögn meira spennandi að mínu mati. Stefán Arnars mun byrja leikinn í 3-2-1 vörn eða 5+1 vörn og mun annað liðið ná 1-2 marka forystu og halda því þar til í seinni hálfleik. Þar mun þetta verða stál í stál en Sara Sif mun fagna nýjum samningi með nokkrum vörslum í lokin sem mun skera úr um sigurvegarann.

Valur - KA/Þór 31 - 22
Valskonur eru sigurstranglegri í þessu einvígi en norðan konur munu selja sig dýru verði. Leikurinn verður í jafnvægi í fyrri hálfleik en svo munu Valskonur síga fram úr á sinni gífurlegu reynslu með Hafdísi í fantaformi í markinu á lokametrunum.

Þórey Rósa Stefánsdóttir - Handboltaþjálfari og fyrrum landsliðskona:

Fram - Haukar 23 - 26

Ég tel að fyrrum liðsfélagar mínir þurfi að láta í minni pokann fyrir Haukaliðinu í þessum leik. Haukastelpur hafa verið á góðu skriði undanfarið á meðan Framkonur hafa tapað síðustu tveimur leikum fyrir þennan leik með 8 mörkum. Blákalt á litið er Haukalðið í betri gír en Framliðið fyrir þennan leik - þannig að raunsæ spá er sigur Hauka. Þó bind ég vonir um að þessi leikur geti orðið bæði hraður og spennandi, enda ný keppni og allt undir.

Valur - KA/Þór 32 - 25

Valur er með sterkara lið en KA/Þór og ég tel því miður að þessi leikur verði ekki spennandi. Þó hefur KA/Þór náð að sýna mjög góða spretti í vetur og norðan konur munu ekki gefa neitt eftir. En því miður verður það ekki nóg gegn gríðarsterku Valsliði.

Rakel Dögg Bragadóttir - Fyrrum þjálfari Fram og landsliðskona:

Fram - Haukar 25-28

Leikur Hauka og Fram verður meira spennandi. Liðin sem kepptu til úrslita í fyrra og báðir klúbbar með stóra sigurhefð. Miklar breytingar hafa verið hjá báðum liðum síðan í úrslitaleiknum á síðasta ári og því hefur gengið verið upp og ofan fyrir bæði lið í vetur og hvorugt liðið náð miklum stöðugleika í sinn leik. Ég hallast að Haukasigri þar sem þær hafa verið að eflast undanfarið, unnu Fram stórt nýlega og spila á sínum heimavelli. Ég spái Haukum sigri 28-25.

Valur - KA/Þór 31-22

Þrátt fyrir virkilega gott tímabil hjá nýliðum KA/Þór þá verður þessi leikur of stórt verkefni fyrir óreynt KA/Þórs liðið. Valsvélin er heldur betur hrokkin í gang, sigurhefðin mikil í liðinu og það svíður ennþá hjá leikmönnum Vals að hafa ekki náð bikartitlinum í fyrra. Þetta verður þægilegur dagur á skrifstofunni hjá Val og ég spái þeim sigri 31-22.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top