Tjörvi Týr Gíslason (Oppenweiler)
Elmar Erlingsson og félagar hans í Nordhorn-Lingen fögnuðu sigri í þýsku B-deildinni í kvöld á sama tíma og Tjörvi Týr Gíslason og liðsfélagar hans í Oppenweiler/Backnang töpuðu enn einum leiknum á tímabilinu. Nordhorn-Lingen unnu fjögurra marka sigur á heimavelli gegn Dessauer 34-30 eftir að hafa verið 16-12 yfir í hálfleik en Nordhorn komst í 15-9 á tímabili í fyrri hálfleik. Ótrúlegt en satt þá var Elmar ekki meðal markaskorara í liði Nordhorn í kvöld en hann gaf tvær stoðsendingar í leiknum. Nordhorn-Lingen er í 5.sæti þýsku B-deildarinnar með 30 stig, fjórum stigum á eftir toppliði Bietigheim en svakaleg toppbarátta er framundan í þýsku B-deildinni þar sem fimm lið berjast um þau tvö lausu sæti sem í boði eru í þýsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Tjörvi Týr Gíslason skoraði eitt mark úr einu skoti í fimm marka tapi gegn Ferndorf 27-23 á útivelli. Ferndorf var einungis með 13 stig fyrir leikinn í kvöld, fimm stigum meira en Krefeld sem er í fallsæti ásamt Oppenweiler/Backnang sem eru á botni deildarinnar með tvö stig.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.