Tandri Már - Sverrir Eyjólfsson (Stjarnan)
Stjarnan hefur tilkynnt nýtt þjálfarateymi karlaliðs félagsins fyrir næstu leiktíð en Sverrir Eyjólfsson tekur við liðinu af Hrannari Guðmundssyni en Sverrir kom inn sem aðstoðarþjálfari liðsins í byrjun árs eftir að Arnari Daða Arnarssyni var sagt upp störfum sem aðstoðarþjálfara liðsins. Hrannar Guðmundsson er áfram þjálfari liðsins en hættir með liðið þegar samningur hans við félagið rennur út eftir tímabilið. Handkastið greindi frá því fyrr á þessu ári að Stjarnan hafi reynt að fá Aðalstein Eyjólfsson þjálfara Víkings til sín fyrir næsta sumar en það gekk ekki upp. Nú hefur yngri bróðir, Aðalsteins, Sverrir hinsvegar tekið við starfinu. ,,Félagið kynnir með stolti nýtt þjálfarateymi fyrir næsta tímabil. Ákveðið hefur verið að fela tveimur gallhörðum Stjörnumönnum verkefnið en það eru þeir Sverrir Eyjólfsson og Tandri Már Konráðsson," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni. ,,Sverrir þekkir leikmannahópinn og umhverfið vel og hefur sýnt mikla fagmennsku og metnað á þessum tíma. Félagið treystir honum til að leiða liðið inn í næsta kafla. Fyrirliðinn okkar Tandri Már Konráðsson tekur að sér hlutverk spilandi aðstoðarþjálfara. Þar styrkjum við enn frekar tengslin milli leikmanna og þjálfara auk þess sem bæði reynsla og leiðtogahæfileikar Tandra munu nýtast hópnum gífurlega vel." ,,Það er sérstakt gleðiefni fyrir handknattleiksdeildina að fá tvo uppalda Garðbæinga og Stjörnumenn til að leiða liðið. Þeir þekkja menninguna og stoltið sem fylgir búningi félagsins og taka við keflinu með skýra sýn á áframhaldandi uppbyggingu." Í tilkynningunni segir að spennandi tímabil sé framundan en liðið er í næst neðsta sæti Olís-deildarinnar þegar þrjár umferðir eru eftir, þremur stigum frá botnsæti deildarinnar en Stjarnan hefur tapað átta leikjum í röð í deildinni. Að lokum er Hrannari Guðmundssyni þakkað kærlega fyrir síðustu þrjú ár hjá félaginu. ,,Við munum flykkjast á bakvið hann og liðið í næstu leikjum!"

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.