Nick Rasmussen (Matti Kronberg)
Danski þjálfarinn, Nick Rasmussen þjálfari danska úrvalsdeildarfélagsins Skanderborg AGF hefur framlengt samningi sínum við félagið til næstu tveggja ára. Hjá Skanderborg leikmaður Kristján Örn Kristjánsson en hann gekk í raðir félagsins sumarið 2024 er á sínu öðru tímabili með liðinu. Skanderborg er sem stendur í 2.sæti dönsku úrvalsdeildarinnar með 28 stig, stigi meira en GOG og Skjern sem eru í 3. og 4.sæti deildarinnar. Þá er Skanderborg á toppi riðils síns í Evrópudeildinni með sex stig en liðið er í riðli með Elverum, Porto og Granollers en tvær umferðir eru eftir af riðlakeppninni. Nick tók við liði Skanderborg sumarið 2017 en Skanderborg og AGF Århus sameinuðu krafta sína sumarið 2021 og hélt Nick áfram sem þjálfari sameinaðs liðs Skanderborg og Århus. Þar áður þjálfaði hann hjá Vejle, Fredercia og Ribe-Esbjerg. ,,Ég er mjög ánægður og glaður með að halda áfram hjá félaginu. Ég held að allt félagið sé í mjög jákvæðri þróun þar sem við erum stöðugt að bæta okkur bæði innan vallar og utan. Verkefnið er metnaðarfullt og ég er ánægður með samstarfið við bæði stjórnendur, starfsfólk og aðra leikmenn í kringum liðið," sagði Nick á heimasíðu félagsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.