Jacob Holm (Alexandre Martins / DPPI via AFP)
Handkastið greindi frá því í október á síðasta ári að Jacob Holm gæti verið á leiðinni heim til Danmerkur frá Paris Saint Germain í sumar. Nú virðast öll vötn renna til Skjern en félagið birti myndband á samfélagsmiðlum sínum í gærkvöldi. Þar er myndband birt af Eiffelturninum í París og gefið í skyn að undirritun fari fram á morgun klukkan 19:20. Það er fjörtíu mínútum áður en Skjern tekur á móti Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni sem hefst klukkan 20:00 á dönskum tíma. Jacob Holm er uppalinn hjá Skjern en fór ungur að árum til Ribe-Esbjerg og lék þar í fimm ár áður en hann fór til Fuchse Berlín. Holm var í Berlín frá 2018-2023 áður en hann fór til Parísar. Samningur hans við Parísar liðið rennur út í sumar. Fyrir hjá Skjern eru fyrrum liðsfélagar Jacob Holm í danska landsliðinu, Mads Mensah og Emil Bergholt. Svíinn, Oscar Carlén tekur við liðinu í sumar en hann stýrir sænsku meisturunum í Ystads í dag. Jacob Holm varð þrítugur í september á síðasta ári og það ætti að koma í ljós í kvöld hvort hann er leikmaðurinn sem Skjern ýjar að í tilkynningu sinni í gærkvöldi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.