Jóhanna Margrét Sigurðardóttir (Sævar Jónasson)
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir skytta Hauka var að vonum mjög ánægð með sigur liðsins gegn Fram í undanúrslitum Powerade-bikarsins í kvöld. ,,Ég er ógeðslega sátt og mjög spennt fyrir laugardeginum," sagði Jóhanna Margrét í viðtali við Handkastið beint eftir leik. Jóhanna Margrét skoraði sjö mörk í leiknum og var næst markahæst í liði Hauka á eftir Emblu Steindórsdóttur sem skoraði átta mörk. ,,Ég er sátt með minn seinni hálfleik, ég hefði viljað standa mig betur varnarlega bæði í fyrri og seinni hálfleik en sigur svo ég er sátt," sagði Jóhanna sem meiddist í lok leiks og var utan vallar síðustu mínútur leiksins. ,,Við skulum vona að þetta sé bara einhver krampi og ég sé einhver aumingi." Jóhanna Margrét gekk í raðir Hauka í sumar eftir að hafa verið í atvinnumennsku síðustu ár. Hún segir að það hafi klárlega verið markmiðið með komu sinni í Hauka að vinna titla. ,,Manni dreymir um að vinna alla titla og ég er ógeðslega spennt að vera komin í úrslit og við höfum lagt mikið á okkur og ég er mjög spennt að sjá hvað liðið getur gert á laugardaginn."

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.