Andri Fannar Elísson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Haukar eru komnir í úrslit Powerade-bikarsins eftir sigur á FH í alvöru Hafnarfjarðarslag í undanúrslitum keppninnar á Ásvöllum í kvöld 25-21 fyrir framan troðfulla stúku af stuðningsmönnum liðanna. Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik leiddu Haukar í hálfleik með tveimur mörkum 11-9 en Haukar byrjuðu seinni hálfleikinn betur og náðu mest fimm marka forystu í stöðunni 17-12. Það bil náðu FH-ingar aldrei að brúa en minnst náðu FH að minnka muninn í tvö mörk í stöðunni 22-20. FH-ingar fengu tækifæri til að skora úr hraðaupphlaupi en sending Garðars Inga fram völlinn fór í hendur Haukamanna. FH-ingar voru allt annað en sáttir og vildu meina að brotið hefði verið á Garðari í aðdragandanum. Þetta virtist vera síðasti séns FH-inga í leiknum og virtust þeir verða bensínlausir í kjölfarið. Haukar kláruðu leikinn með fjögurra marka sigri 25-21. Freyr Aronsson var markahæstur í liði Hauka með sjö mörk ásamt Ólafi Ægi Ólafssyni og Össur Haraldsson kom næstur með fimm. Hjá FH bar Ómar Darri Sigurgeirsson upp sóknarleikinn með sjö mörkum og Garðar Ingi Sindrason skoraði sex. Markverðir FH-inga voru frábærir í leiknum. Daníel Freyr Andrésson varði ellefu skot í marki FH í fyrri hálfleik og hélt þeim inn í leiknum á köflum. Hann varði hinsvegar ekki skot þær tíu mínútur sem hann stóð í markinu í seinni hálfleik en þá kom Jón Þórarinn Þorsteinsson í markið og varði samtals 6 skot og var með rúmlega 40% markvörslu. Grétar Ari Guðjónsson varði 13 skot í marki Hauka og var með 38% markvörslu. Varnarleikur Hauka var þéttur allan leikinn og voru FH-ingar lengi vel í miklum vandræðum með að finna glufur á vörn Hauka. Þá átti hægri vængur FH-inga slæman leik í kvöld. Það kemur í ljós síðar í kvöld hverjir mótherjar Hauka verða í bikarúrslitunum en ÍR og KA mætast klukkan 20:15. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.