Arnór Ísak Haddsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Einar Rafn Eiðsson var markahæstur í liði KA í sigri liðsins gegn ÍBV í 19.umferð Olís-deildar karla með níu mörk auk þess var hann með tólf sköpuð færi. Það var hinsvegar annar leikmaður sem kom inn í KA liðið vegna meiðsla Bjarna Ófeigs Valdimarssonar og þurfti heldur betur að stíga upp. Arnór Ísak Haddsson skoraði sex mörk, gaf þrjár stoðsendingar og fiskaði fjögur víti í leiknum. ,,Hann er leikmaðurinn sem KA þurfti til að eiga séns og hann steig upp,” sagði Arnar Daði Arnarsson í nýjasta þætti Handkastsins þegar rætt var um sigur KA gegn ÍBV. ,,Arnór Ísak er fínn leikmaður til að koma inn af bekknum og sprengja upp leikinn. Hann getur oft komið með eitthvað að borðinu og hann gerði það svo sannarlega í þessum leik.” ,,Arnór Ísak er að mörgu leyti vanmetinn leikmaður. Það er erfitt að eiga við hann, hann sækir mikið niður í parketið og þyngdarpunkturinn er skringilegur. Menn lenda í vandræðum með hann og hann fiskar oft margar brottvísanir. Þetta er sleipur leikmaður og gott fyrir KA að hafa hann,” bætti Benedikt Grétarsson við. Arnór Ísak verður í eldlínunni í undanúrslitum Powerade-bikarsins í kvöld þegar KA og ÍR mætast klukkan 20:15. Í fyrri undanúrslitaleiknum mætast FH og Haukar klukkan 18:00.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.