Fannst ekki samræmi í ákvörðunum dómaranna
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Sigursteinn Arndal (Sævar Jónasson)

Sigursteinn Arndal þjálfari FH var að vonum vonsvikinn eftir fjögurra marka tap FH gegn Haukum í undanúrslitum Powerade-bikarsins í kvöld, 21-25 eftir að Haukar leiddu í hálfleik 11-9.

Sigursteinn sagði í viðtali við Handkastið að byrjun FH-inga bæði í upphafi fyrri og seinni hálfleiks hafi reynst þeim dýrkeypt.

,,Við byrjum báða hálfleikina ekki nægilega vel í dag og þar ná Haukar sér í forskot sem við erum í rauninni alltaf að elta. Það er mjög erfitt í svona leik að vera alltaf að elta. Ég hafði hinsvegar alltaf trú að við myndum ná þessu. Þetta er FH - Haukar og það gengur á öllu og ég hafði alltaf trú á að við myndum ná að koma okkur inn í leikinn en því miður gerðist það ekki í dag."

,,Það var ekki erfitt og við létum það ekki trufla okkur á nokkurnhátt. Við vissum að við þyrftum að eiga frábæran leik í dag til að fara áfram og því miður áttum við ekki frábæran leik en ég tek ekkert af mínu liði, það lögðu sig allir fram og það vantaði ekki baráttuna."

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top