Andri Snær Stefánsson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Undanúrslitin í Powerade-bikar karla fara fram á Ásvöllum í kvöld þegar tveir leikir fara fram. Fyrri leikurinn hefst klukkan 18:00 þegar Hafnarfjarðarliðin, FH og Haukar mætast og klukkan 20:15 mætast síðan ÍR og KA. Andri Snær Stefánsson þjálfari KA hefur sent stuðningsmönnum KA skilaboð fyrir leikinn í kvöld en skilaboð Andra er hægt að sjá í heild sinni hér að neðan. Skilaboð Andra Snæs til stuðningsmanna KA: Ævinlega kæra KA-fólk! Þessi vetur er búinn að vera mjög litríkur og skemmilegur hjá okkur í handboltanum í KA. Margir góðir leikir og öflugir sigrar, nokkrir svekkjandi tapleikir inn á milli. Við höfum kveikt á gömlu góðu KA stemningunni þar sem mætingin á heimaleikina hefur verið frábær og stuðningurinn hjálpað okkur að landa sigrum. Nær undantekningalaust erum við með fleiri stuðningsmenn en andstæðingurinn á útivöllum í Reykjavík sem er mögnuð staðreynd! Við í KA liðinu leggjum mikla áherslu á að spila með tilfinningum og séum stoltir að spila fyrir félagið, myndum liðsheild og tengjum við fólkið okkar. Það besta er að við eigum áfram hluti inni að okkar mati og við viljum meira. Afar spennandi verkefni eru framundan og í dag mætum við sprækum ÍR-ingum í undanúrslitum bikarsins. Þetta verður stærsti leikur tímabilsins hingað til og við erum spenntir að fara í þetta verkefni með okkar stuðningsmönnum. Ég hef oft talað um að það eru algjör lífsgæði að spila fyrir framan KA fólkið okkar og finna fyrir auka kraft sem hjálpar okkur á vellinum. Ég hvet okkar KA fólk til að fjölmenna á Ásvelli og hjálpa okkur í baráttunni, leikurinn byrjar 20:15 og mæli með að mæta tímanlega. Saman berjumst við og þið eruð okkar áttundi maður á vellinum eins og alltaf! Sjáumst í final four og áfram KA! Andri Snær, þjálfari KA

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.