Bjarni Fritzson (Egill Bjarni Friðjónsson)
Undanúrslitin í Powerade-bikar karla fara fram á Ásvöllum í kvöld. FH og Haukar mætast klukkan 18:00 og klukkan 20:15 mætast KA og ÍR. ÍR er á botni Olís-deildarinnar á meðan KA er í 5.sæti deildarinnar en 17 stigum munar á liðunum í deildinni. Það er hinsvegar ekkert spurt að því þegar liðin mætast í kvöld. Hinsvegar vekur útivallarárangur ÍR undanfarin ár athygli en á 705 daga tímabili hefur ÍR einungis unnið tvo útileiki og það gegn Fjölni í bæði skiptin í Egilshöllinni. 705 dagar eru síðan ÍR vann KA 2 í lokaumferð Grill66-deildarinnar tímabilið 2023/2024 en ÍR vann Grill66-deildin það tímabil og tryggði sér sæti í Olís-deildinni. ÍR hóf Olís-deildina vel í 1.umferðinni í kjölfarið og vann sannfærandi sigur á Fjölni í Egilshöllinni en síðan þurfti liðið að bíða alveg þangað til í desember í fyrra þegar ÍR sló út Grill66-deildarlið Fjölnis í 8-liða úrslitum Powerade-bikarsins einnig í Egilshöllinni. ÍR-ingar sem eru með sjö stig í Olís-deildinni á þessu tímabili hafa einungis unnið tvo leiki í deildinni og báða á heimavelli. Liðið hefur gert þrjú jafntefli en eina stig liðsins á útivelli á þessu tímabili var jafntefli gegn Stjörnunni í Garðabænum. Stjarnan er í 11.sæti Olís-deildarinnar með þremur stigum meira en ÍR þegar þrjár umferðir eru eftir. Hvað gera ÍR-ingar í kvöld á útivelli? Ná þeir að tengja tvo útisigra í röð í Powerade-bikarnum eða halda þeir áfram að tapa leikjum á útivelli líkt og síðustu tvo tímabil? Leiðrétting: ÍR vann Grill66-deildarlið Þórs á útivelli í 16-liða úrslitum bikarsins á síðustu leiktíð og hafa því unnið þrjá útileiki á rúmlega 700 dögum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.