Orkan geggjuð og nú er mitt verkefni að ná mönnum niður á jörðina
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Gunnar Magnússon (Sævar Jónasson)

Haukar eru komnir í úrslit Powerade-bikarsins eftir sigur á FH í alvöru Hafnarfjarðarslag í undanúrslitum keppninnar á Ásvöllum í kvöld 25-21 fyrir framan troðfulla stúku af stuðningsmönnum liðanna. Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka var að vonum mjög ánægður þegar hann ræddi við Handkastið eftir leik í kvöld en það var allt annað hljóð í Gunnari í dag en fyrir viku þegar liðið steinlág gegn FH í deildinni.

,,Maður var nánast búin að þjást í viku en því oftar sem ég horfi á síðasta leik þá var ég bara meira sannfærður um að við myndum taka þá í dag. Sá leikur var mjög sérstakur, hvernig markvarslan skiptist á milli liða og við lærðum rosalega mikið af síðasta leik gegn þeim og svo mættum við bara klárir í þetta. Framkvæmdum hlutina frábærlega inn á vellinum, vörnin var stórkostleg og Grétar kom þá með og sóknarleikurinn lengi vel góður í kvöld." og Gunnar Magnússon hélt áfram.

,,Við framkvæmdum þetta vel, mættum með hugarfarið og ég er ánægður með karakterinn hjá strákunum og svörin. Búið að vera vika sem er búið að vera sparka í þig og við töluðum um það að eina leiðin væri var að svara inni á vellinum og við gerðum það."

Orkustigið í húsinu var gríðarlega mikið og var Gunnar spurður út í stuðninginn í húsinu í dag og hvernig honum lýst á úrslitaleikinn á Laugardag en Haukar mæta annaðhvort KA eða ÍR sem eru að leika þegar þessi frétt er skrifuð.

,,Orkan var geggjuð núna og mitt verkefni núna er að ná mönnum niður á jörðina því við höfum ekki afrekað neitt þó við séum komnir í úrslitaleikinn, stórt verkefni eftir og nú fylgjumst við með hverjum við mætum á laugardag."

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top