Björgvin Þór Hólmgeirsson og Arnar Freyr Guðmundsson hafa gert leikmannasamning við sitt uppeldisfélag ÍR og eru löglegir með liðinu í bikarúrslitaleiknum gegn Haukum á morgun. ÍR tryggði sér sæti í úrslitum bikarsins með sigri á KA með einu marki í gærkvöldi 32-31 þar sem langmarkahæsti leikmaður liðsins síðustu tvö tímabil, Baldur Fritz Bjarnason meiddist í upphafi leiks. Óvissa ríkir um þátttöku hans í leiknum á morgun og hafa ÍR-ingar brugðið á það ráð að gera bæði Björgvin og Arnar Frey löglega. Þetta kemur fram í tilkynningu sem félagið sendi frá sér nú rétt í þessu. ,,Mikil óvissa ríkir um það hvort Baldur Fritz verði leikfær í bikarúrslitunum á morgun. Til að bregðast við mögulegri fjarveru hans hafa kempurnar Björgvin Hólmgeirsson og Arnar Freyr Guðmundsson samþykkt að draga fram skóna til að styðja við ungu strákana okkar og við treystum á að þið hin gerið það líka." Björgvin lék síðast í Olís-deildinni tímabilið 2022/2023 með Stjörnunni en var í september árið 2023 ráðinn sem framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar ÍR. Arnar Freyr lék einnig síðast það tímabil þá með ÍR en hann lék allan sinn feril með félaginu en er aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna í dag. Leikur Hauka og ÍR hefst klukkan 18:30 annað kvöld og fer fram á Ásvöllum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.