Nokkur bakslög í bataferlinu en mér líður miklu betur núna
Egill Bjarni Friðjónsson)

Thea Imani Sturludóttir leikmaður Vals og íslenska landsliðið kom til baka í síðustu umferð Olís-deildar kvenna um síðustu helgi er hún lék nokkrar mínútu í tíu marka sigri Vals gegn Stjörnunni.

Hún kom svo einnig við sögu í sigri Vals gegn KA/Þórs í undanúrslitum Powerade-bikarsins á miðvikudagskvöldið og verður í eldlínunni þegar Valur mætir Haukum í bikarúrslitunum á laugardaginn. Leikur Hauka og Vals hefst klukkan 15:30.

Thea Imani var í viðtali við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamann á RÚV eftir sigurinn á KA/Þór á miðvikudaginn og var spurð út í stöðuna og meiðslin sem hún hefur verið að ganga í gegnum.

,,Ég tognaði á heimsmeistaramótinu fyrir áramót aftan í læri á mjög slæmum stað og þetta hefur verið mjög mikil brekka en þetta er allt að koma núna og vonandi gengur þetta áfram vel. Það voru nokkur bakslög í bataferlinu en mér líður miklu betur núna."

,,Ég hvíldi mjög lengi og var komin aðeins af stað og fékk að vera aðeins með á æfingum fyrir svona þremur vikum en þá fann ég að þetta var búið að rifna upp aftur. Ég fór í sprautu fyrir tveimur vikum og það hefur hjálpað. Vöðvinn er aðeins að koma til núna."

Thea segir að líkaminn hafi verið fínn eftir leikinn gegn KA/Þór.

,,Þegar ég spila vörn þá er ég ekki endilega að fara í hreyfinguna sem er verst og ég er tiltölulega nýbyrjuð að vera með á æfingum. Við erum hægt og bítandi að reyna á þetta og athuga hvar mörkin eru. Það hefur verið ömurlegt að vera upp í stúku. Ég held ég hafi aldrei verið svona lengi frá. Þetta tekur á hausinn og það er ótrúlega gaman að koma aftur inn og vera með stelpunum og að hjálpa til."

Framundan er úrslitaleikur gegn ríkjandi bikarmeisturum Hauka en Valur tapaði í undanúrslitum bikarsins í fyrra gegn Fram.

,,Það svíður ennþá. Maður man ennþá eftir leiknum sem við töpuðum í undanúrslitum. Við erum ógeðslega spenntar og ógeðslega peppaðar.” 

Viðtalið er hægt að sjá hér.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top