Fimm leikir fóru fram í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi þegar 12.umferðin lauk. Toppliðin í A-riðli sem bæði hafa tryggt sér sæti í 8-liða úrslitunum, Fuchse Berlín og Álaborg töpuðu sínum leikjum. Barcelona vann 20 marka sigur á RK Zagreb þar sem Viktor Gísli fór á kostum. Wisla Plock og Magdeburg gerðu jafntefli í Póllandi 29-29 þar sem Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fjögur mörk. Orri Freyr Þorkelsson skoraði tvö mörk í tveggja marka sigri Sporting gegn Álaborg. Hér að neðan má sjá hápunkta úr leikjum gærkvöldsins: Sporting - Álaborg 35-33 Fuchse Berlín - Kielce 31-33 Barcelona - RK Zagreb 46-26 PSG - Pick Szeged 29-28 Wisla Plock - Magdeburg 29-29

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.