Farið var yfir undanúrslitaleikina í Powerade-bikarkeppnum karla og kvenna í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins sem tekinn var upp í Rapyd-stúdíóinu. Sérfræðingurinn fékk þá Einar Inga Hrafnsson og Guðjón Guðmundsson til að fara yfir leikina fjóra sem fóru fram í vikunni og spáð í spilin fyrir úrslitaleikina sem fara fram á Ásvöllum á morgun. Á Ásvöllum já, bikarúrslitahelgin í Þjóðaríþróttinni fer fram á Ásvöllum en ekki í Laugardalshöllinni, annað árið í röð. Afhverju? Einar Ingi Hrafnsson er einn helsti talsmaður þessa mála og hefur látið sína skoðun í ljós að undanförnu meðal annars í Handboltahöllinni sem sýnd er öll mánudagskvöld í Sjónvarpi Símans þar sem hann gagnrýndi það að bikarúrslitahelgin færi fram á heimavelli Hauka en nú er komin upp sú staða að Haukar eru í bikarúrslitum bæði í karla og kvennaflokki. Einar Ingi útskýrði sitt mál í Handkastinu sem hægt er að hlusta á í öllum hlaðvarpsveitum en Guðjón Guðmundsson tók undir orð Einars Inga og kallar eftir því að Ingvar Sverrisson formaður ÍBR svari fyrir þetta mál. ,,Það er gjörsamlega fyrir neðan allar hellur að bikarúrslit í handbolta og körfubolta fari ekki fram í Laugardalshöll og það þarf að skoða þetta mál allt niður í kjölinn. Það getur ekki verið þannig að einhverjir samskiptafulltrúar hjá Íþróttabandalagi Reykjavíkur ákveði það að HSÍ eða KKÍ geti ekki fengið Laugardalshöll á þessum tíma einfaldlega vegna þess að þá falla niður æfingar á yngri flokkum Ármanns í körfubolta. Þetta er okkar þjóðarhöll og þarna eiga stærstu viðburðirnir að fara fram. Þetta er ekki bara bikarhelgin sem er undir, við erum í vandræðum líka með að koma landsleikjum fyrir í Laugardalshöll, þá er eitthvað að. Þá verður stjórn HSÍ að fara alla leið með málið, hvert? Jú í borgaryfirvöld. Borgin á Laugardalshöllina og það verður að finna einhvern flöt á þessu. Það getur ekki verið þannig að Ármann eða Þróttur hafi áhrif á það hvort bikarúrslitaleikir eða landsleikir fari ekki fram í Laugardalshöll því það eru einhverjar æfingar eða skólaíþróttir sem þurfa að fara fram. Þetta er algjörlega fyrir neðan allar hellur og formaður íþróttabandalags Reykjavíkur, Ingvar Sverrisson verður að svara fyrir þetta. Mér finnst þetta ekki nægilega gott og við getum ekki kennt HSÍ um þetta. Þetta er ÍBR, Reykjavíkurborg og það verður að taka á þessu máli," sagði Guðjón Guðmundsson meðal annars í Handkastinu. ,,Það væri gaman að heyra hvort formaður ÍBR (Ingvar Sverrisson) finnst eðlilegt að það þurfi að fella niður æfingar hjá Haukum en ekki hjá Ármanni. Þetta er þjóðarhöllin og þetta er vettvangur fyrir þessa viðburði hvort sem þér líkar það betur eða verr. Það á ekki einhver að hafa ákvörðunarvald hvort sem hann er innan Ármanns, Þrótti, ÍBR eða hvar sem þessi ákvörðun er nákvæmlega tekin. Hún á ekki að geta verið tekin,” bætti Einar Ingi Hrafnsson við. Umræðuna um Laugardalshöllina og staðsetningu bikarúrslitina var tekin í upphafi Handkastsins sem hægt er að nálgast á öllum hlaðvarpsveitum.Krefur svara frá formanni ÍBR

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.