Meistaradeildin: Viktor Gísli stórkostlegur og önnur úrslit umferðarinnar
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Tólfta umferð Meistardeildar Evrópu var spiluð í gær og á miðvikudag og voru 6 Íslendingar í eldlínunni.

Á miðvikudaginn mættust ONE Veszprém og Dianmo Bucuresti. Veszprém unnu nokkuð þægilegan 35-28 sigur. Bjarki Már Elísson lék ekki með Vesprém í gærkvöldi.

Þá tók Íslendingaliðið Kolstad á móti HBC Nantes í Kolstad Arena í Noregi í gærkvöldi. Nantes unnu 7 marka sigur 26-33. Sigvaldi Björn Guðjónsson var atkvæðamikill í liði Kolstad með 6 mörk. Sigurjón Guðmundsson fékk tækifæri í markinu og varði 1 af þeim 7 skotum sem hann fékk á sig.

Þá skildu GOG og Eurofarm Pelister jöfn 28-28 þar sem færeyingurinn knái Óli Mittún var markahæstur í liði GOG með 7 mörk og Andrzej Gustaw Widomski var markahæstur fyrir Eurofarm Pelister með 7 mörk.

Í gær tóku svo Sporting á móti Álaborg. Sporting unnu 35-33 sigur eftir að hafa verið 14-19 undir í hálfleik. Orri Freyr Þorkelsson skoraði tvisvar fyrir Sporting.

Fuchse Berlin fengu Kielce í heimsókn. Talant Dujshebaev, nýr þjálfari franska landsliðsins lagði Berlínarrefina með tveimur mörkum, 31-33. Mathia Gidsel var markahæstur fyrir Fuchse með 10 mörk og Szymon Sicko var atkvæðamestur fyrir Kielce með 6 mörk.

SC Magdeburg heimsóttu Wisla Plock og endaði leikurinn með 29-29 jafntefli og er þetta fyrsta tapaða stig Magdeburgar í keppninni. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 4 mörk fyrir þýska liðið en Ómar Ingi Magnússon lék ekki með liðinu í kvöld vegna persónulegra ástæðna.

Loks fengu Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Barca HC Zagreb í heimsókn og unnu stórsigur 46-26. Viktor Gísli átti stóleik og varði 17 bolta og var með rétt tæplega 40% markvörslu.

Janus Daði Smárason og liðsfélagar í Pick Szeged fóru til Frakklands þar sem þeir mættu PSG. PSG vann eins marks sigur 29-28. Janus Daði skoraði 2 mörk fyrir Pick Szeged.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top