Thea Imani Sturludóttir leikmaður Vals og íslenska landsliðið kom til baka í síðustu umferð Olís-deildar kvenna um síðustu helgi er hún lék nokkrar mínútu í tíu marka sigri Vals gegn Stjörnunni. Hún kom svo einnig við sögu í sigri Vals gegn KA/Þórs í undanúrslitum Powerade-bikarsins á miðvikudagskvöldið og verður í eldlínunni þegar Valur mætir Haukum í bikarúrslitunum á laugardaginn. Leikur Hauka og Vals hefst klukkan 15:30. Thea Imani var í viðtali við Þorkel Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamann á RÚV eftir sigurinn á KA/Þór á miðvikudaginn og var spurð út í stöðuna og meiðslin sem hún hefur verið að ganga í gegnum. ,,Ég tognaði á heimsmeistaramótinu fyrir áramót aftan í læri á mjög slæmum stað og þetta hefur verið mjög mikil brekka en þetta er allt að koma núna og vonandi gengur þetta áfram vel. Það voru nokkur bakslög í bataferlinu en mér líður miklu betur núna." ,,Ég hvíldi mjög lengi og var komin aðeins af stað og fékk að vera aðeins með á æfingum fyrir svona þremur vikum en þá fann ég að þetta var búið að rifna upp aftur. Ég fór í sprautu fyrir tveimur vikum og það hefur hjálpað. Vöðvinn er aðeins að koma til núna." Thea segir að líkaminn hafi verið fínn eftir leikinn gegn KA/Þór. ,,Þegar ég spila vörn þá er ég ekki endilega að fara í hreyfinguna sem er verst og ég er tiltölulega nýbyrjuð að vera með á æfingum. Við erum hægt og bítandi að reyna á þetta og athuga hvar mörkin eru. Það hefur verið ömurlegt að vera upp í stúku. Ég held ég hafi aldrei verið svona lengi frá. Þetta tekur á hausinn og það er ótrúlega gaman að koma aftur inn og vera með stelpunum og að hjálpa til." Framundan er úrslitaleikur gegn ríkjandi bikarmeisturum Hauka en Valur tapaði í undanúrslitum bikarsins í fyrra gegn Fram. ,,Það svíður ennþá. Maður man ennþá eftir leiknum sem við töpuðum í undanúrslitum. Við erum ógeðslega spenntar og ógeðslega peppaðar.”

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.