Stjarnan tapað fimm af síðustu átta leikjum með 1-2 mörkum
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Afturelding vann mikilvægan eins marks sigur á Stjörnunni í 19.umferð Olís-deildar karla í síðustu viku og unnu þar með sinn fyrsta leik á nýju ári eftir þrjú töp í röð.

Taphryna Stjörnunnar heldur hinsvegar áfram en liðið hefur tapað átta leikjum í röð og eru komnar niður í 11.sæti deildarinnar með 10 stig, þremur stigum meira en ÍR sem er á botni deildarinnar. Þrjár umferðir eru eftir af deildinni.

,,Það var alveg vitað að þetta yrði jafn leikur. Afturelding tapað þremur leikjum í röð og Stjarnan gaf Haukum alvöru mótspyrnu í síðustu umferð. Afturelding var ekkert að fara ýta allt í einu á “on” takkann og vinna með tíu mörkum. Stórt credit á Stjörnuna hinsvegar, þeir börðust og gáfu allt í þetta og voru hreinlega óheppnir að vinna ekki leikinn. Þeir eru oft mjög slakir á loka mínútunum en auðvitað er ákveðinn fórnarkostnaður hjá þeim. Þeir eru að gefa fullt af ungum leikmönnum tækifæri," sagði Davíð Már Kristinsson í nýjasta þætti Handkastsins þar sem farið var yfir leikina í 19.umferð Olís-deildar karla og 18.umferð Olís-deildar kvenna.

,,Afturelding fór í 7 á 6 í lokin og það kláraði leikinn fyrir þá. Þorvaldur Tryggvason var frábær á línunni og kláraði sín færi vel. Þeir unnu þennan leik í blálokin," bætti Davíð við.

Stjarnan hefur nú tapað þremur leikjum í röð með 1-2 mörkum. Stjarnan hefur tapað átta leikjum í röð í Olís-deildinni og fimm af þeim tapleikjum hafa tapast með einu eða tveimur mörkum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top