Það er ekki bara leikið til bikarúrslita í meistaraflokki karla og kvenna um helgina í Kuehne+Nagel höllinni því einnig verða leiknir tólf bikarúrslitaleikir í yngri flokkum um alla helgi. Fyrstu tveir úrslitaleikirnir fara fram í kvöld klukkan 18:00 og 20:00 og síðan halda bikarúrslitaleikirnir áfram bæði í fyrramálið og allan sunnudaginn. Valur er með flest lið í úrslitum yngri flokka, sex talsins. KA og sameiginlegt lið KA/Þórs er með fjögur lið í úrslitum og ÍBV er með þrjú lið. Hér fyrir neðan er leikjadagskráin fyrir helgina: Föstudagur 27. febrúar: Laugardagur 28. febrúar: Sunnudagur 1. mars:
4. flokkur kvenna: Valur – ÍBV - 18:00
4. flokkur karla: ÍR – HK - 20:00
6. flokkur karla yngri: KA – Stjarnan - 9:00
5. flokkur kvenna, yngri: Valur – KA/Þór - 10:00
5. flokkur karla, yngri: Þór – ÍR - 11:00
5. flokkur kvenna, eldri: KA/Þór – Valur - 12:00
5. flokkur karla, eldri: KA – FH - 13:00
6. flokkur kvenna yngri: Valur – FH - 11:00
6. flokkur kvenna eldri: Stjarnan – Fram - 11:45
6. flokkur karla eldri: Grótta/KR – Víkingur - 12:30
3. flokkur kvenna: Valur – ÍBV - 14:00
3. flokkur karla: ÍBV – Valur - 16:30

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.