ÍR vann afar óvæntan en góðan eins marks sigur á KA í undanúrslitum Powerade-bikars karla í gærkvöldi, 32-31. Það sem gerir sigur ÍR enn merkilegri er að þeirra lang markahæsti leikmaður á tímabilinu og á síðustu leiktíð, Baldur Fritz Bjarnason meiddist í stöðunni 4-2 og kom ekkert meira við sögu í leiknum. Farið var yfir leikinn í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins í morgun. ,,Lykilinn á sigri ÍR er að þeir eru einungis með þrjá tapaða bolta. Ég held að það hafi aldrei gerst hjá ÍR," sagði Guðjón Guðmundsson gestur Handkastsins meðal annars og hélt áfram: ,,Síðan er það annar punktur sem menn spá kannski ekkert í. Baldur Fritz byrjar ágætlega en hann meiðist og hvað gerist? Elvar Otri fær það hlutverk að stýra liðinu og stjórna. Hvað gerir hann? Jú hann er að hugsa um félaga sína og er að spila fyrir liðið. Ég hef ekki séð hann spila betur en hann gerði í þessum leik. Jökull Blöndal var stórkostlegur og Patrekur Smári að spila langt yfir getur varnarlega. Það voru margir þættir sem hjálpuðu ÍR í þessum leik." ÍR er með 11 tapaða bolta að meðaltali í leik í Olís-deild karla, einungis KA og Selfoss hafa tapað fleiri leikjum en ÍR í vetur. Einar Ingi Hrafnsson var einnig gestur í Handkastinu og hann fékk þá spurningu hvort ÍR væri betri með eða án Baldurs Fritz. ,,ÍR þarf á Baldri að halda í úrslitaleiknum ef þetta á að vera eitthvað spennandi þá verður Baldur að vera með ÍR. ÍR dettur ekki á þessa frammistöðu og þetta fáa tæknifeila og þessa vörn aftur. Til að ÍR nái að hámarka sinn leik þá þurfa þeir einhvern X-factor. Ég veit alveg að Baldur betur verið svolítið viltu og tekið of mikið pláss en til að ÍR eigi séns gegn Haukum í úrslitaleiknum þá verður hann að vera með.” Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins benti á þá staðreynd að ÍR hefur unnið fimm leiki af 22 leikjum í vetur. Hann velti fyrir sér hvort Baldur Fritz væri í of stóru hlutverki í sóknarleik ÍR allavegana miðað við hvernig sóknarleikurinn gekk í gær, án Baldurs. ,,Þetta er fimmti sigur ÍR á tímabilinu í einhverjum 22 leikjum, að einn af þessum sigurleikjum sé að gerast án þeirra langmarkahæsta leikmanns og markahæsta leikmann deildarinnar en hann er á sama tíma með langflesta töpuðu boltana í deildinni. Maður veltir því fyrir sér hvort þarna sé að koma einhver skýring yfir slæmu gengi ÍR í vetur.”

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.