Viggó braut þúsund marka múrinn
{{brizy_dc_image_alt entityId=


Viggó Kristjánsson gerði sér lítið fyrir í gærkvöldi og braut þúsund marka múrinn í þýsku úrvalsdeildinni en hann skoraði þrjú mörk í 25-25 jafntefli Erlangen gegn Eisenach á útivelli í 22.umferð þýsku úrvalsdeildarinnar.

Þessi 1000 mörk hefur Viggó gert með fjórum félögum í Þýskalandi en hann gekk í raðir Leipzig árið 2019 frá West Wien í Austurríki.

Þaðan fór hann til Wetzlar áður en hann gekk í raðir 1898 Stuttgart og lék þar tvö tímabil. Í kjölfarið fór hann aftur til Leipzig en hann var síðan keyptur til Erlangen í janúar á síðasta ári og er á sínu öðru ári með Erlangen.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top