Engin þynnka í Haukum sem unnu Þór
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Þór Akureyri tóku á móti nýkrýndum bikarmeisturum Hauka fyrir norðan í fyrsta leik 20.umferða Olís deildar karla í kvöld.

Margir bjuggust við að Haukar myndu mæta ryðgaðir til leiks eftir að hafa tryggt sér bikarmeistaratitilinn í fyrsta skipti í 12 ár á laugardaginn en það var ekki að sjá.

Haukar byrjuðu leikinn af miklum krafti og voru komnir með sex marka forystu, 2-8, eftir rúmlega 10 mínútna leik. Þórsarar reyndu hvað þeir gátu að klóra í bakkann í fyrri hálfleik en Haukar stóðust öll áhlaup þeirra og leiddu með fimm mörkum í hálfleik, 13-18.

Þórsarar komu grimmir til leiks í síðari hálfleik og náðu að minnka muninn í eitt mark, 25-26. Haukar settu þá aftur í fluggírinn og komust fimm mörkum yfir á ný, 25-30 og unnu að lokum sex marka sigur 28-34.

Hafþór Már Vignisson og Oddur Gretarsson voru markahæstir hjá Þór með 5 mörk en hjá Haukum var Skarphéðinn Ívar Einarsson markahæstur með 9 mörk og fann sig greinilega vel í sínum heimabæ.

Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt í af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.  

Sjáðu stöðuna í deildinni

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top