Haukar unnu góðan sex marka sigur á Þór í fyrsta leik 20. umferðar Olís-deildar karla fyrir norðan í kvöld einungis fjórum dögum eftir að hafa orðið bikarmeistarar á laugardaginn. Lokatölur 28-34 fyrir Haukum. Með sigrinum fara Haukar upp fyrir FH í 2.sætið deildarinnar og eru tveimur stigum á eftir Val sem er á toppi deildarinnar. FH og Valur eiga þó bæði leik til góða á Hauka. ,,Ég er ánægður með strákana. Það er þvílík fagmennska að koma hingað norður og sækja þessi tvö stig. Við sýndum alvöru karakter og sýndum að við erum alvöru lið og komum norður og vinnum leikinn. Ég er mjög glaður með þetta," sagði Gunnar Magnússon þjálfari Hauka í viðtali við Handkastið eftir leikinn. Mikil umræða hefur verið um bikar þynnku þeirra liða sem hafa orðið bikarmeistarar undanfarin ár. Hvernig dílaði Gunnar við svokallaða bikar þynnku fyrir þennan leik? ,,Ég talaði bara hreina íslensku og sagði þeim að bikar þynnka væri bara fyrir aumingja og við værum alvöru lið og færum norður og engin afsökun. Við erum í toppbaráttu og þurfum að geta barist á fleiri vígstöðvum en í bikarnum. Það er nóg eftir af deildinni og ég vill engan aumingjaskap heldur að fá alvöru karakter og ég fékk frábær svör frá mínum mönnum og er ánægður með þá." Haukar náðu mest sjö marka forystu snemma leiks í stöðunni 11-4 og mest náði liðið átta marka forystu í fyrri hálfleik. Fimm mörkum munaði þó á liðunum í hálfleik 13-18. ,,Við vorum klaufar að hleypa þeim inn í leikinn í lok fyrri hálfleiks þar vorum við með gott forskot og áttum að vera meira en fimm mörkum yfir en Þórsarnir á heimavelli með góða leikmenn við vissum að það kæmi smá áhlaup. Við vorum í veseni með að verjast 7 á 6 en síðan náðum við að leysa það betur og fengum smá auka kraft til að klára þetta." Lengra viðtal við Gunnar má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.