Norðurlöndin: Karlskrona með mikilvægan sigur í úrslitakeppnisbaráttunni
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Tvö Íslendingalið áttu leik í Svíþjóð í kvöld en annað liðið náði í mikilvægan sigur á meðan hitt liðið tapaði nokkuð örugglega.

Karlskrona tók á móti Hammarby og unnu frábæran sigur, 31-28 en fyrir leikinn voru Hammarby í þriðja sæti deildarinnar en sigurinn gerir það að verkum að Karlskrona eru með jafnmörg stig og Önnereds sem sitja í áttunda sæti deildarinnar. Arnór Viðarsson lét lítið að sér kveða í kvöld en hann skoraði eitt mark úr fimm skotum og gaf tvær stoðsendingar.

Amo tapaði nokkuð örugglega á útivelli gegn Skövde í kvöld, 32-25 en úrslitin þýða það að Amo á lítinn möguleika að komast í úrslitakeppnina en eru áfram í hörkubaráttu að forðast umspil um fall úr deildinni. Arnar Birkir Hálfdánsson skoraði fjögur mörk úr sex skotum og gaf þrjár stoðsendingar fyrir gestina.

Úrslit kvöldsins:

Karlskrona 31-28 Hammarby

Skövde 32-25 Amo

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top