Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði fjögur mörk þegar IFK Kristianstad vann eins marks sigur á Melsungen 31-30 í gærkvöldi eftir að staðan hafði verið jöfn 16-16 í hálfleik. Reynir Þór Stefánsson skoraði þrjú mörk og Arnar Freyr Arnarson eitt mark í liði Melsungen. Melsungen var 16-15 yfir þegar Kristianstad átti einungis aukakast eftir í fyrri hálfleik. Einar Bragi Aðalsteinsson tók boltann og stillti sér upp fyrir framan sex manna varnarvegg Melsungen og gerði sér lítið fyrir og skoraði úr aukakastinu. Þegar upp var staðið skipti þetta mark Kristianstad miklu máli sem vann leikinn með einu marki eins og fyrr segir. Sigurinn gefur Kristianstad heldur betur líflínu fyrir lokaumferðina en fyrir umferðina var Melsungen með sex stig og Kristianstad tvö. Kristianstad mætir Stiven Tobar Valencia og félögum í Benfica í lokaumferðinni og sigur þar kemur þeim áfram í fyrstu umferð útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar. Benfica og Kristianstad eru jafn að stigum með fjögur stig í riðlinum. Ótrúlegt mark Einars Braga beint úr aukakasti er hægt að sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.