Skilur ekki afhverju deildarkeppnin lýkur 12.mars
Egill Bjarni Friðjónsson)

Lokaleikurinn í 20.umferð Olís-deildar karla fer fram í Heklu-höllinni í kvöld þegar Stjarnan og KA mætast klukkan 18:30.

Stjarnan er í 11.sæti deildarinnar með 10 stig á meðan KA er með 24 stig um miðja deild. Rætt var um leiktímann á þessum leik í síðasta þætti Handkastsins þar sem 21. umferðin fer síðan strax fram á mánudagskvöld áður en lokaumferðin fer síðan öll fram á fimmtudagskvöldið í næstu viku.

Stjarnan og KA fá því einungis tvo daga til að undirbúa sig fyrir leiki sína í 21.umferðinni. Stjarnan mætir þar ÍR og KA fær FH í heimsókn.

,,Eftir þessa umferð er spilað aftur á mánudagskvöld. Stjarnan og KA eru að fara spila á föstudag og strax aftur á mánudag. Breiddin á Stjörnuliðinu fyrir leik gegn ÍR, ég skil ekki að Stjarnan hafi samþykkt þetta. Afhverju í andskotanum er þessi leikur á föstudaginn? Segjum að Tandri eða Ísak Logi séu eitthvað að reyna koma inn, þá eru þeir ekki að fara spila föstudag og mánudag. Ég bara hafði ekki pælt í þessu fyrr en núna,” sagði Arnar Daði Arnarsson sem virtist vera í áfalli að bæði Stjarnan og KA hafi viljað spila á föstudagskvöld og leika síðan aftur þremur dögum síðar.

,,Þetta er eiginlega jafn skrítið og að Þór-Haukar sé á miðvikudaginn,” bætti Ásgeir Gunnarsson við en hann var gestur í þættinum ásamt Sigurjóni Friðbirni Björnssyni.

Deildarkeppnin í Olís-deild karla lýkur 12. mars en þá fara þrjú lið í sumarfrí. Átta lið fara í 8-liða úrslit og 11.sætið fer í umspil um laust sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð.

,,Ég bara skil þetta ekki. Nú var ég í handbolta í meistaraflokki og ég man ekki eftir því að tímabilið hafi verið búið í mars. Er mig bara að misminna?" velti Sigurjón Friðbjörn fyrir sér.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top