Um miðjan febrúar greindi Handkastið frá því að Haukur Ingi Hauksson leikstjórnandi HK í Olís-deild karla hafi verið í samningaviðræðum við Íslands- og bikarmeistara Fram. Nú hefur Handkastið eftir öruggum heimildum að ÍBV hafi blandað sér í baráttuna um Hauk Inga og vilja ólmir fá leikmanninn til sín. ÍBV missir Andra Erlingsson eftir tímabilið en hann hefur samið við sænska úrvalsdeildarfélagið, Kristianstad. Haukur Ingi sem er fæddur árið 2004 hefur verið lykilmaður í liði HK í Olís-deildinni síðustu tvö tímabil og hefur hlutverk hans í liðinu stækkað ört. Haukur Ingi verður í eldlínunni í kvöld þegar HK fær Selfoss í heimsókn í Kórinn klukkan 18:30. HK er með 12 stig á meðan Selfoss er með 11 stig en bæði lið eru að berjast um að ná síðasta sætinu í úrslitakeppninni. Haukur Ingi er markahæsti leikmaður HK í vetur með 100 mörk en næst markahæsti leikmaður HK, Ágúst Guðmundsson er einnig orðaður frá HK í sumar og virðist hann vera á leið í Kaplakrikann. Fleiri leikmenn eru sagðir vera á förum frá HK því samkvæmt heimildum Handkastsins eru þeir Hjörtur Ingi Halldórsson og Sigurður Jefferson að ganga í raðir Hauka eftir tímabilið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.