Hvorki Katrín Tinna Jensdóttir línumaður ÍR né Hafdís Renötudóttir markvörður Vals ferðuðust í nótt með íslenska landsliðinu til Svartfjallalands. Þetta staðfesti Arnar Pétursson við Handkastið rétt fyrir flugtak en liðið flaug til Póllands rétt eftir miðnætti en stelpurnar okkar fljúga svo til Podgorica höfuðborgar Svartfjallalands í morgunsárið. Báðir leikmennirnir fengu þær höfuðhögg í sigri Íslands gegn Svartfjallalandi í gær sem endaði með eins marks sigri 28-27. Arnar Pétursson segir að það sé ljóst að Katrín Tinna taki ekki þátt í leiknum á sunnudag. Katrín Tinna fékk högg á gagnaugað í byrjun leiks og kom ekkert frekar við sögu í leiknum. Arnar sagði við Handkastið í gærkvöldi að ef Hafdís yrði betri í dag verður henni flogið út á föstudaginn. Ethel Gyða Bjarnasen markvörður Fram var kölluð inn í landsliðið seint í gærkvöldi og ferðaðist með liðinu í nót. Ethel Gyða lék upp öll yngri landslið Íslands en hún á engan A-landsleik á bakinu. Þá staðfesti Arnar Pétursson að Alexandra Líf Arnarsdóttir leikmaður Hauka fari með landsliðinu út en hún var í leikmannahópi Íslands í gærkvöldi en kom þó ekkert við sögu í leiknum. Síðari leikur Íslands og Svartfjallalands í undankeppni EM fer fram á sunnudaginn og hefst klukkan 17:00 að íslenskum tíma. Um er að ræða fjórða leik þjóðanna í riðlinum. Íslenski hópurinn eins og staðan er í dag fyrir leikinn gegn Svartfjallalandi: Markverðir: Aðrir leikmenn:
Ethel Gyða Bjarnasen - Fram (0/0)
Sara Sif Helgadóttir - Haukar (22/0)
Alexandra Líf Arnarsdóttir - Haukar (6/3)
Andrea Jacobsen - HSG Blomberg-Lippe (67/116)
Dana Björg Guðmundsdóttir - Volda (20/47)
Díana Dögg Magnúsdóttir - HSG Blomberg-Lippe (72/97)
Elín Klara Þorkelsdóttir - IK Sävehof (34/131)
Elín Rósa Magnúsdóttir - HSG Blomberg-Lippe (39/80)
Elísa Elíasdóttir - Valur (30/27)
Katrín Anna Ásmundsdóttir - Fram (21/28)
Lovísa Thompson - Valur (38/72)
Matthildur Lilja Jónsdóttir - ÍR (8/1)
Rakel Oddný Guðmundsdóttir - Haukar (11/6)
Sandra Erlingsdóttir - ÍBV (46/192)
Sara Dögg Hjaltadóttir - ÍR (4/12)
Sonja Lind Sigsteinsdóttir - Haukar (4/0)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.