Emma Olsson lék í vikunni sinn fyrsta landsleik fyrir sænska landsliðið í sigri gegn Serbum í undankeppni Evrópumótsins. Emma er ein af þremur nýliðum í sænska landsliðshópnum sem leikur annan leik gegn Serbíu á morgun klukkan 17:10. Sænska landsliðið olli mörgum vonbrigðum á heimsmeistaramótinu fyrir áramót og höfðu sérfræðingar í Svíþjóð miklar áhyggjur af þróun liðsins. Tomas Axnér þjálfari liðsins gerði margar breytingar á landsliðshópnum fyrir komandi verkefni, eða alls átta breytingar. Nokkrir reynslumiklir leikmenn eru úr leik, en fjöldi nýrra og ungra leikmanna fengu tækifærið í leikjunum á þessum landsliðsglugga. Þar á meðal er Emma Olsson sem lék með Fram í Olís-deildinni tímabilið 2021/2022 en í dag leikur hún með Borussia Dortmund í Þýskalandi. Það sem kemur mest á óvart er að reynslumikla Kristín Þorleifsdóttir er ekki í sænska landsliðshópnum en hún hefur leikið með liðinu á síðustu fimm stórmótum. Þá var góð vinkona mín, markvörðurinn Filippa Idéhn ekki valin en hún hefur ákveðið að hætta með sænska landsliðinu og þá var Mathilda Lundström ekki í hópnum. ,,Við viljum gjarnan prófa nýja leikmenn og gefa þeim tækifæri í þessu umhverfi," sagði landsliðsþjálfarinn Tomas Axnér. Emma Olsson sem er 25 ára gamall línumaður hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir frammistöðu sína með Dortmund. ,,Emma hefur lagt hart að sér til að fá þetta tækifæri og það er gaman að geta gefið henni það," sagði Axnér en Emma Olsson komst ekki á blað í sigri Svíþjóðar gegn Serbíu á dögunum.
Alls eru átta af 17 leikmönnum í hópnum nýir frá HM.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.