Ólafur Ægir hefur framlengt við Hauka
Sævar Jónasson

Bikarmeistarinn, Ólafur Ægir Ólafsson hægri skytta Hauka í Olís-deild karla hefur framlengt samningi sínum við félagið til ársins 2028.

Ólafur Ægir sem er uppalinn hjá Gróttu hefur á ferlinum leikið með Fram, Val og Haukum auk þess sem hann lék með Lakers Stäfa í Sviss í eitt tímabil. Hann varð meðal annars Íslandsmeistari með Val tímabilið 2016/2017.

Ólafur Ægir sem er fæddur árið 1995 gekk í raðir Hauka sumarið 2019 er hann því á sínu sjöunda ári hjá félaginu. Hann hefur nú framlengt samningi sínum til tveggja ára.

Ólafur fór mikinn í undanúrslitaleik Hauka gegn FH í Powerade-bikarnum og var þar markahæsti leikmaður Hauka í leiknum með sjö mörk. Hann hafði síðan hægt um sig í úrslitaleiknum og skoraði tvö mörk úr fimm skotum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top