Í kvöld mættust Fjölnir og Fram 2 í Egilshöllinni í Grill 66 deild karla. Það var þónokkuð jafnræði í fyrri hálfleikinn en samt sveiflukenndur fyrri hálfleikur. Lengi vel var jafnt og svo skiptust liðin á að hafa forskotið í fyrri hálfleik. Seinni part fyrri hálfleiks voru Fjölnis menn mun betri og voru 18-15 yfir í hálfleik. Í seinni hálfleik þurftu Framarar bara nokkrar mínútur til að jafna leikinn. Seinni hálfleikurinn reyndist svo vera æsispennandi og skemmtilegur. Jafnt var lengi vel á öllum tölum í seinni hálfleik. Fjölnis menn komust svo 30-27 þegar 7 mínútur voru eftir af leiknum. Framarar áttu svo frábæran lokakafla sem þeir sigruðu 5-1. Lokatölur urðu 31-32 fyrir Fram. Óvæntur en sterkur útisigur hjá Frömurum. Hjá Fjölni var Bergur Bjartmars með 12 bolta varða. Aðalsteinn Örn og Þorleifur Rafn voru báðir með 8 mörk. Garpur Druzin varði 8 skot hjá Fram. Max Emil Stenlund skoraði 8 mörk fyrir þá. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.