Fjórir leikir fóru fram í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í gær. Áttum við Íslendingar sjö fulltrúa í eldlínunni. Janus Daði Smárason var markahæstur með sjö mörk í tapi Pick Szeged gegn GOG. Bjarki Már Elísson var ekki í liði Veszprém en hann glímir við meiðsli. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði 4 mörk í tapi Kolstad gegn Dinamo Bucuresti, 33-23. Benedikt Gunnar Óskarsson var einnig mættur aftur í lið Kolstad eftir að hafa glímt við meiðsli en honum tókst ekki að skora. Sigurjón Guðmundsson varði 3 skot í markinu hjá norska liðinu. Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar í Barca urðu fyrsta liðið til þess að vinna SC Magdeburg í Meistardeildinni í vetur er þeir unnu 29-36 sigur eftir að staðan hafði verið jöfn 16-16 í hálfleik. Viktor varði 2 skot og var með um 18% markvörslu. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði 5 mörk fyrir Magdeburg og Ómar Ingi Magnússon skoraði 3. Hér að neðan má sjá hápunkta úr leikjum gærkvöldsins: Dinamo București - Kolstad 33-23 Nantes - Veszprém 33-31 Pick Szeged - GOG 34-37 Magdeburg - Barcelona 29-36

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.