Ríkjandi Evrópumeistarar SC Magdeburg máttu þola sjö marka tap á heimavelli í næst síðustu umferð riðlakeppni Meistaradeildarinnar í gærkvöldi gegn Barcelona í uppgjöri toppliðanna í B-riðli. Lokatölur 29-36. Um er að ræða fyrsta tap Magdeburg í Meistaradeildinni á þessu tímabili en liðið tapaði síðast í Meistaradeildinni gegn Kolstad í lok febrúar á síðasta ári, eða 27. febrúar árið 2025. Jafnræði var með á liðunum í 51 mínútu en í stöðunni 29-29 skoruðu Magdeburg ekki fleiri mörk í leiknum á meðan Barcelona skoraði sjö síðustu mörk leiksins. Þjálfari Þýska liðsins, Bennet Wiegert, átti einnig erfitt með að útskýra hvað nákvæmlega fór úrskeiðis í lok leiksins og að sjá lið sitt hrynja algjörlega: „Ég veit ekki hvað fór úrskeiðis að lokum.“ Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg í leiknum og Ómar Ingi þrjú. Með sigrinum fór Barcelona upp fyrir Magdeburg þegar ein umferð er eftir af riðlakeppninni. Bæði lið hafa þegar tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum keppninnar.
„Við vorum einbeittir, en við gátum ekki haldið einbeitingu allan leikinn,“ útskýrði Ómar Ingi Magnússon leikmaður Magdeburg við þýska fjölmiðilinn Handball-world eftir leikinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.