Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastins vakti athygli á því í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins að HSÍ hafi hafið miðasölu á tvo æfinga landsleiki sem framundan eru gegn Svíum um miðjan mars sem fara fram hér á landi. Það sem vekur mestu athygli Sérfræðingsins er sú staðreynd að Snorri Steinn Guðjónsson hefur ekki enn tilkynnt landsliðshópinn tæpum tveimur vikum fyrir verkefnið og því veit í raun og veru enginn nema mögulega hann sjálfur hvaða íslensku leikmenn munu spila leikinn gegn Svíum. ,,Er ekki athyglisvert að það sé farið að selja miða á landsleik þar sem þú veist ekki einu sinni hverjir eru að fara spila fyrir íslenska landsliðið? Verður þetta úrvalslið Jóns Halldórssonar formanns HSÍ og Ásgeirs Jónssonar varaformanns?" með þessum orðum hóf Sérfræðingurinn umræðuna. ,,Við vitum að Ísak Steinsson er í hópnum, Drammen hafði tilkynnt það. Hvenær má gera ráð fyrir því að þessi hópur verður tilkynntur? Verður hann tilkynntur um helgina?" sagði Stymmi klippari áður en Sérfræðingurinn hélt áfram: ,,Hverjum dettur í hug að kaupa miða á einhvern landsleik og þú veist ekki einu sinni hverjir eru að koma? Verður þetta eitthvað úrvalslið úr Olís-deildinni eða verður þetta Einar Bragi Aðalsteinsson og Jóhannes Berg Andrason í skyttunum og Dagur Sverrir Kristjánsson? " Stymmi klippari sagðist vera sammála honum en benti á að það væri eflaust til fullt af vitleysingum eða stuðningsmönnum landsliðsins sem væru búnir að kaupa miða. ,,Við sjáum áhugann á liðinu á stórmótum þar sem fólk er að flykkjast erlendis og fylgjast með landsliðinu. Það voru hátt í 3000 Íslendingar í Kristianstad í janúar." ,,Já, en þá gæti þetta verið vörusvik ef það verður staðan að þetta verður bara eitthvað varalið." ,,Ég neita að trúa því að í þessi örfáu skipti sem Snorri Steinn fær tækifæri til að spila með landsliðið að hann ætli ekki að nýta þennan glugga sem undirbúning fyrir næsta stórmót. Við erum ekki á leið í undankeppni fyrir HM, nú þurfum við bara að nýta þessi örfáu skipti sem við fáum og fá loksins eitthvað almennilegt lið til að spila á móti," sagði Klipparinn áður en Sérfræðingurinn bætti við: ,,Alveg heilum mánuði síðan landsliðið var saman í mánuð. Á sama tíma hefur líka verið kallað eftir því að Snorri Steinn stækki hópinn og gefi fleiri mönnum tækifæri. " Umræðunni lauk ekkert þarna en hægt er að hlusta á alla umræðuna í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.