ÍR gæti fallið í sófanum heima í kvöld
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Staðan ÍR í Olís-deild karla verður bara erfiðari og erfiðari með hverju tapinu en liðið tapaði í Vestmannaeyjum í gær, 44-40 í þriðju síðustu umferð Olís-deildarinnar.

ÍR hefur einungis unnið tvo leiki í Olís-deildinni á þessu tímabili og gert þrjú jafntefli, með sjö stig á botni deildarinnar þegar tvær umferðir eru eftir. Það varð ljóst í febrúar að liðið gæti hvorki náð Þór né Selfossi að stigum vegna lakari innbyrðis stöðu gagnvart þeim liðum en nýliðarnir báðir, Þór og Selfoss eru með 11 stig í 9. og 10.sæti deildarinnar.

Eina liðið sem ÍR getur tölfræðilega náð er Stjarnan sem er í 11.sætinu með 10 stig, þremur stigum meira en ÍR en ÍR og Stjarnan mætast í næstu umferð. Stjarnan fær KA í heimsókn í Heklu-höllina í kvöld klukkan 18:30 og með sigri Garðbæinga er ljóst að ÍR er fallið úr Olís-deildinni og mun leika í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

,,ÍR-ingarnir eru í bullandi basli og það er auðvitað þessi leikur í kvöld, Stjarnan - KA eina líflína þeirra er að Stjarnan má ekki vinna þann leik. ÍR gæti fallið í sófanum heima sem er sennilega ekki góð tilfinning og það verður fróðlegt að fylgjast með því."

,,Ég veit að starfsfólkið á Brikk sendir hugheilar og baráttukveðjur í Breiðholtið. Það er stutt að fara úr Breiðholtinu í Brikk á Dalsveginum. Það er spurning hvort við sendum einhvern hátíðarpakka í Breiðholtið á laugardaginn ef þeir falla," sagði Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins meðal annars í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top