Lokaleikur 20.umferðar Olís-deildar karla fer fram í Heklu-höllinni í kvöld þegar Stjarnan tekur á móti KA klukkan 18:30. Sigri Stjarnan leikinn er ljóst að ÍR er fallið úr deildinni en þá getur ÍR ekki náð Stjörnunni að stigum og ÍR er með lélegri innbyrðisstöðu gagnvart Selfoss og Þór en þau lið eru með fjórum stigum meira en ÍR þegar tvær umferðir eru eftir. ÍR og Stjarnan mætast í næstu umferð Olís-deildarinnar á mánudagskvöldið. ,,Ég held að úrslitin gærkvöldi gefi Stjörnuliðinu ákveðna líflínu í leiknum gegn KA. Það er mikið undir, ekki bara það að með sigri fella þeir ÍR og sleppa þá við ákveðinn úrslitaleik gegn ÍR á mánudaginn heldur eru þeir þá að fara mæta liði sem er fallið og gætu með sigri gegn ÍR verið búið að jafna HK að stigum fyrir lokaumferðina," sagði Arnar Daði Arnarsson þáttastjórnandi Handkastsins sem gefur sér það að HK tapi gegn Val á útivelli í næst síðustu umferðinni. ,,En ef ég tek enn einn hringinn á þessa fallbaráttu. Bjarni Fritzson er með ungt og efnilegt ÍR-lið og ef þeir verða fallnir fyrir mánudaginn þá gætu þeir mætt með kaldann haus og ég held að það sé ekkert endilega betra að fá þá fallna," benti Stymmi klippari á.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.