Róbert Sigurðarson leikmaður ÍBV sneri til baka á völlinn eftir meiðsli er liðið vann fjögurra marka sigur á ÍR á heimavelli í 20.umferð Olís-deildar karla í gærkvöldi 44-40. Róbert hefur verið að glíma við hnémeiðsli undanfarnar vikur og hafði ekkert leikið með ÍBV í fyrstu leikjum ársins. Það eru hinsvegar jákvæðar fréttir fyrir ÍBV að Róbert sé kominn aftur fyrir loka leiki tímabilsins en ÍBV á einungis tvo leiki eftir af Olís-deildinni áður en úrslitakeppnin hefst. Róbert hefur einungis verið í leikmannahópi ÍBV í tólf leikjum af 19 í vetur en hann hefur verið óheppinn með meiðsli í vetur. ÍBV fór upp fyrir Aftureldingu með sigrinum í gær og sitja í 4.sæti deildarinnar með 25 stig, jafn mörg stig og Afturelding en KA gæti farið upp fyrir þau bæði með sigri gegn Stjörnunni í lokaleik 20.umferðarinnar í kvöld.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.