FH vann ótrúlegan eins marks sigur á Aftureldingu í 20.umferð Olís-deildar karla í gærkvöldi 30-29 með sigurmarki frá Jakobi Martin Ásgeirssyni sem skoraði auðvelt mark í tómt mark Aftureldingar eftir að Afturelding hafi verið í 7 á 6 í lokasókn sinni. Daninn í liði Aftureldingar, Oscar Lykke kastaði boltanum frá sér og það nýttu FH-ingar sér og skoraði Jakob Martin sigurmarkið. Sjáðu Aftureldingu vaska leiknum í Kaplakrika. Í myndskeiðinu af markinu sem Handkastið birti í morgun sést hinsvegar glögglega að Jakob Martin Ásgeirsson er á einhvern ótrúlegan hátt lentur í teig Aftureldingar áður en hann losar boltann í tómt markið. Sem er út á fyrir sig ótrúleg ákvörðun þar sem Jakob hafði fyrir löngu getað verið búinn að losa boltann. Magnús Kári Jónsson annar af dómurum leiksins virðist hinsvegar vera með hugann að einhverju allt öðru þegar atvikið átti sér stað en eins og myndin hér að neðan sýnir er Magnús Kári í frábærri aðstöðu til að sjá atvikið. Magnús Kári lét hinsvegar eins og ekkert hafi verið athugunarvert við mark FH og stóð markið gott og gilt og fögnuðu FH-ingar ákaft í leikslok. Þetta mark gæti haft mikil áhrif á toppbaráttuna í Olís-deild karla því FH-ingar eru með sigrinum aðeins einu stigi á eftir toppliði Vals þegar tvær umferðir eru eftir. Það verður að setja stórt spurningarmerki við frammistöðu Magnúsar Kára í þessu atviki en hann hefur í gegnum tíðina fengið mikið lof fyrir sína frammistöðu í dómara búningnum. Mögulega að það lof sé að stíga honum til höfuðs því þetta er auðvitað eitthvað sem á ekki að fara framhjá einum né neinum og gæti haft ótrúleg áhrif á niðurstöðuna í Olís-deild karla þegar upp er staðið en gríðarlega spenna er um öll sæti í deildinni þegar einungis tvær umferðir eru eftir.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.