FH vann ótrúlegan eins marks sigur á Aftureldingu í 20.umferð Olís-deildar karla í gærkvöldi. Afturelding voru með boltann þegar tæp mínúta var eftir af leiknum í stöðunni 29-29. Stefán Árnason þjálfari Aftureldingar tók leikhlé. Afturelding stillti upp með sjö sóknarmenn í lokasókninni. Það gekk ekki betur en svo að Oscar Lykke tapaði boltanum og Jakob Martin Ásgeirsson nýtti sér það, hljóp upp í hraðarupphlaup og skoraði sigurmark leiksins. Hægt er að sjá lokasekúndur leiksins hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.