Stjarnan gæti endurheimt þrjá leikmenn í kvöld
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Síðasti leikurinn í 20.umferð Olís-deildar karla fer fram í Heklu-höllinni í kvöld þegar Stjarnan og KA eigast við.

Stjarnan er í 11.sæti deildarinnar með 10 stig og gæti fellt ÍR með sigri en KA er í 6.sætinu og gæti farið upp fyrir ÍBV og Aftureldingu og tyllt sér í 4.sæti deildarinnar með sigri.

Stjarnan gæti endurheimt þrjá leikmenn eftir meiðsli og tveir þeirra gætu verið að spila sína fyrstu leiki í Olís-deildinni á þessu tímabili. Tandri Már Konráðsson, Sveinn Andri Sveinsson og Ísak Logi Einarsson gætu allir leikið með Stjörnunni í leiknum í kvöld en Hrannar Guðmundsson þjálfari liðsins staðfesti í samtali við Handkastið að þeir væru búnir að vera æfa með liðinu í vikunni.

Það myndi þó ekki skýrast fyrr en í aðdraganda leiksins hvort og þá hverjir gætu leikið í kvöld.

Tandri Már og Sveinn Andri hafa ekkert leikið með Stjörnunni í Olís-deildinni á þessu tímabili en Tandri Már sleit hásin í Evrópuleik fyrir tímabilið í Rúmeníu á meðan Sveinn Andri meiddist á rist á undirbúningstímabilinu.

Ísak Logi meiddist í janúar og hefur ekkert leikið með Stjörnunni eftir áramót. Stjarnan á síðan leik gegn ÍR strax á mánudagskvöldið áður en liðið mætir Fram í lokaumferðinni á fimmtudagskvöldið í næstu viku. Stjarnan og KA leika því þrjá leiki á sjö dögum.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top