Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín leikmaður Fram í Olís-deild kvenna og íslenska landsliðsins þurfti fyrr í vikunni að draga sig úr íslenska landsliðshópnum fyrir leiki landsliðsins gegn Svartfjallalandi í undankeppni EM vegna meiðsla. Að læknisráði hefur henni verið gert að taka sér 3-4 mánaða frí frá handbolta vegna meiðsla í baki en það er Handbolti.is sem greinir frá. Þar segir að tímabilinu hjá Ölfu Brá sé þar með lokið en um sé að ræða útungun í mjóhrygg sem gæti leitt til brjóskloss ef hún tekur sér ekki hvíld. Í samtali við Handkastið staðfesti Haraldur Þorvarðarson meiðslin á Ölfu og sagði að bakmeiðslin hafi verið að hrjá Ölfu Brá síðustu vikur og mánuði. Það hafi þó enginn vitað alvarleika meiðslanna fyrr en nú fyrir stuttu. Alfa Brá hefur leikið alla leiki Fram á tímabilinu og skorað 88 mörk í 18 leikjum Fram í Olís-deildinni og þá var hún einnig með liðinu í undanúrslitum Powerade-bikarsins í síðustu viku þegar liðið tapaði gegn Haukum. Alfa Brá er markahæsti leikmaður Fram á tímabilinu og því er um að ræða mikla blóðtöku fyrir liðin en þrjár umferðir eru eftir af Olís-deildinni áður en úrslitakeppnin hefst. ,,Þetta er högg en við þessu er ekkert að gera,“ sagði Alfa Brá við Handbolta.is. Fram er í 5.sæti Olís-deildarinnar með 17 stig þegar þrjár umferðir eru eftir, þremur stigum á eftir ÍR og með tveimur stigum meira en KA/Þór. Fram heimsækir Val í næstu umferð Olís-deildarinnar áður en liðið mætir Stjörnunni og loks KA/Þór í lokaumferðinni allt án Ölfu Brá.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.