Aron Rafn Eðvarðsson markvörður hjá Haukum hefur ekkert spilað með liðinu á þessu ári eftir að hafa fengið boltann í höfuðið á æfingu liðsins í aðdraganda fyrsta leiks Hauka eftir Evrópumótið fyrir rúmlega mánuði síðan. Aron Rafn hefur áður glímt við eftirköst höfuðáverka og leikur alla jafna með hjálm í leikjum Hauka á Íslandsmótinu. Það var lán í óláni að Haukar höfðu fengið Grétar Ara Guðjónsson markvörð frá Grikklandi í janúar sem hefur því leyst Aron Rafn af í fjarveru hans en Aron Rafn var einn besti leikmaður Hauka fyrir áramót. Aron hefur misst af fimm deildarleikjum og þá missti hann af bæði undan- og úrslitaleik Powerade-bikarsins um síðustu helgi er Haukar tryggðu sér bikarmeistaratitilinn eftir sigur á FH og síðan ÍR í úrslitaleiknum. Nú virðist hinsvegar vera að birta til hjá Aroni Rafni sem sagði í samtali við Handkastið stefna á endurkomu aftur í Haukaliðið í næstu umferð sem leikin verður á mánudagskvöld en einungis tvær umferðir eru eftir af Olís-deildinni. Haukar fá nýliða Selfoss í heimsókn á mánudaginn og fara síðan í Kórinn og mæta HK á fimmtudaginn í næstu viku í lokaumferð Olís-deildarinnar. Aron sagðist vera byrjaður að æfa á nýjan leik og ef allt gengur að óskum þá stefnir hann á að vera með í leiknum gegn Selfossi á mánudagskvöldið.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.