Einn leikur átti sér stað í þýsku úrvalsdeildinni kvöld er 24.umferð gekk í garð. Þessi leikur fór fram í Flensburg þar sem Flensburg Handewitt tók á móti Blæ Hinriks og félögum í Leipzig. Leikurinn var jafn og spennandi til að byrja með mikið af mörkum var skorað og stefndi allt í hörkuleik, hálfleikstölur voru 18-18. Í seinni hálfleik tók Flensburg frumkvæðið snemma og hélt því allt til enda. Sprettir Leipzig voru of fáir og stuttir til að setja alvöru pressu á Flensburg. Lokatölur 36-28, atkvæðamesti leikmaður vallarins var Marko Grgic með 9 mörk fyrir lið Flensburg.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.