
Í dag mættust Valur 2 og Hörður í Grill 66 deild karla á Hlíðarenda. Valsarar byrjuðu gríðarlega sterkt og áttu fljúgandi start. Eftir rúmt korter voru þeir komnir 10-5 yfir. Þeir héldu forskotinu áfram en Harðar menn voru ekki langt frá þeim. Í hálfleik var staðan 15-13 fyrir heimamenn í Val. Valsarar voru áfram betri aðilinn fyrstu 10 mínúturnar í seinni hálfleiknum en Harðverjar jöfnuðu svo leikinn í stöðunni 21-21. Aftur komust Valsarar yfir í 24-21 en Harðverjar svöruðu um hæl og jöfnuðu í 24-24 þegar korter var eftir. Seinasta korterið var svo jafnt og spennandi en aldrei náðu Harðverjar að jafna eftir að Valsarar komust yfir. Mest náðu þeir að minnka muninn í 1 mark. Lokatölur leiksins urðu svo 33-30 fyrir Völsurum. Frábær sigur hjá þeim á móti öflugu liði Harðverja. Bjarki Snorrason og Anton Máni voru í sérflokki hjá Val 2. Bjarki með 8 mörk og Anton Máni varði 16 skot. Hjá Herði var Jose Neto markahæstur með 10 mörk. Stefán Freyr og Hermann Alexander vörðu samtals 6 skot. Bagg.is styður umfjöllun Handkastsins um Þjóðaríþróttina- Kóðinn: Handkastid veitir 20% afslátt af fyrstu sendingu í áskrift á Bagg.is.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.