Elmar og Tjörvi töpuðu báðir – Tjörvi fékk skell
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Íslendingarnir í þýsku B-deildinni þeir Elmar Erlingsson og Tjörvi Týr Gíslason þurftu báðir að sætta sig við tap í leikjum sínum í dag.

Elmar Erlingsson skoraði fimm mörk úr sex skotum og gaf alls sjö stoðsendingar í tapi Nordhorn-Lingen í þýsku B-deildinni í dag.

Nordhorn-Lingen tók á móti Balingen-Weilstetten á heimavelli í dag og mátti þola fjögurra marka tap 33-37 eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í hálfleik, 19-16. Í seinni hálfleiknum fór hinsvegar allt í skrúfuna og unnu gestirnir seinni hálfleikinn með sjö mörkum 21-14.

Nordhorn er í 5. sæti deildarinnar með 30 stig og Balingen-Weilstetten er í öðru sæti með 36 stig. Þetta er annað tap liðsins í deildinni í röð en liðið hafði verið á fljúgandi siglingu þangað til.

Tjörvi Týr og félagar í Oppenweiler/Backnang töpuðu með 18 marka mun 31-49 á heimavelli gegn Dormagen en Dormagen var í 15.sæti deildarinnar fyrir leikinn. Tjörvi Týr skoraði eitt mark fyrir Oppenweiler/Backnang sem sitja sem fastast á botni deildarinnar með einungis tvö stig eftir 23 leiki og leita enn af sínum fyrsta sigri á tímabilinu.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top