Tók snemma ákvörðun um að velja sitt sterkasta lið gegn Svíum
Johan Nilsson / TT News Agency / AFP

Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari íslenska karla landsliðsins hefur valið þann leikmannahóp sem tekur þátt í tveimur æfingaleikjum gegn Svíþjóð dagana 19. og 21. mars næstkomandi. Leikirnir fara fram í N1-höllinni á Hlíðarenda og í Kaplakrika.

Reynir Þór Stefánsson leikmaður Melsungen og Ísak Steinsson leikmaður Drammen koma nýir inn í hópinn frá EM verkefninu ásamt Stiven Tobar Valencia en Andri Már Rúnarsson fær ekki tækifæri. Bjarki Már Elísson glímir við meiðsli og þá á Ómar Ingi Magnússon von á barni og fær frí í þessu verkefni.

Handkastið tók viðtal við Snorra Stein eftir að hópurinn var tilkynntur sem hægt er að sjá í heild sinni hér að neðan. Hann var spurður fyrst að því hvort hann hafi ekkert viljað taka einhverja sénsa í þessum æfingaleikjum sem framundan eru?

,,Ég valdi mitt sterkasta lið og tók snemma ákvörðun að gera það í þessum glugga. Ef þú ert að tala um áhættur þá eru þær ekki þarna. Maður þarf alltaf að pæla og það að vera kominn inn á HM þá leyfir þú þér að hugsa aðeins lengra fram í tímann. Enn sem komið er þá ætla ég að nálgast þessa landsliðsglugga að einhverju leyti aðeins öðruvísi. Ég er ekki að fara umturna hópnum í maí verkefninu gegn Egyptalandi en ég tók snemma ákvörðun um það að ef ég ætla að taka einhverjar tilraunir þá væri það frekar í maí glugganum."

Viðtalið við Snorra Stein má sjá hér að neðan.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top