Verður Casper Mortensen spilandi þjálfari á næstu leiktíð?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Orðrómur hefur farið á kreik í dönskum handbolta um möguleg félagaskipti fyrrum landsliðsmannsins Casper U. Mortensen eftir yfirstandandi tímabil.

Mortensen sem er í dag vinstri hornamaður HSV Hamburg tilkynnti á dögunum að hann myndi yfirgefa herbúðir félagsins í sumar og flytja heim til Danmerkur.

Hvar hann myndi leika á næsta tímabili hefur hinsvegar enginn haft hugmynd um en margir höfðu búist við því að hann myndi ganga til liðs við eitt af félögunum í dönsku úrvalsdeildinni. Nú er hinsvegar sterkur orðrómur uppi um það að hann eigi í viðræður við HC Copenhagen sem leikur í dönsku 1. deildinni. Ef af verður gæti hlutverk Mortensen orðið óvanalegt.

Heimildir herma að rætt sé um að hann taki að sér tvöfalt hlutverk hjá félaginu sem spilandi aðalþjálfari liðsins.

Ef samningar nást gæti það orðið stórt skref fyrir HC Copenhagen, sem hefur markmið um að styrkja stöðu sína og berjast á ný um sæti meðal fremstu liða í dönskum handbolta. Engin opinber staðfesting hefur þó borist frá félaginu eða leikmanninum sjálfum á þessum tímapunkti.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top