Fer Grøndahl til Flensburg til að flýta fyrir komu Pytlick?
{{brizy_dc_image_alt entityId=

Upp hefur komið nýr orðrómur sem bendir til þess að Simon Pytlick gæti skipt til Füchse Berlín strax í sumar. Simon Pytlick hefur nú þegar samið við Berlínar liðið um komu sumarið 2027 en bæði Füchse Berlín og Simon Pytlick eru tilbúin að ganga ansi langt til að flýta félagaskiptunum um eitt ár.

Er nýi orðrómurinn sá að Flensburg myndi fá norska leikstjórnandann Tobias Grøndahl og og einnig 750.000 evrur frá þýsku meisturunum.

Samkvæmt fjölmiðlinum RT Handball gætu ein merkilegustu viðskipti síðustu missera verið í vinnslu. Füchse Berlín hefur þó lengi haft löngun til að fá danska landsliðsmanninn, Simon Pytlick fyrr til félagsins og Pytlick hefur sjálfur opnað fyrir möguleika á félagaskiptum strax í sumar.

RT Handball segir frá mögulegri lausn til að láta það ganga eftir og um leið yrði þetta ótrúleg viðskipti milli félaga á leikmannamarkaðnum.

Samkvæmt fjölmiðlum gæti Flensburg fengið norska landsliðsmanninn Tobias Grøndahl og um 750.000 evrur sem hluta af samningnum ef Pytlick flytur til Berlínar strax í sumar. Slíkur samningur milli félaga væri óvanalegur í handboltaheiminum, þar sem hrein skipti milli tveggja leikmanna eru sjaldgæfari.

Enn sem komið er eru þetta þó einungis sögusagnir. Hvorugt félaganna hefur tjáð sig um þennan orðróm og Pytlick er áfram samningsbundinn Flensburg þar til hann flytur til Berlínar árið 2027.

Nýjustu fréttir

{{brizy_dc_image_alt imageSrc=

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top